Tuesday, June 23, 2009

Undraveröld

Undraveröld sprettur fram úr fingrum mínum.
Undrið er svo nýtt, skýring kemur seinna. Þetta er eins og pakki sem kemur frá veröld sem ég þekki ekki og bíð spennt eftir því að fá seinna að vita frá hverjum þessi skilaboð eru...

Ný verk á málverkasíðunni minni.

Friday, June 19, 2009

Tilveran

Jónsmessa í dag og Ísland er heilagt!
Alsæla er í lífi mínu núna. Mála, sofa, borða. Heilinn er fullur og biðröð að komast að á léreftið.
Þakka þér Guðfinna mín fyrir síðuna og það er gaman að geta rennt myndunum ungum sem öldnum inn í Ísland sem er mér kærast af öllum löndum núna með orku sína og fegurð.
Konur eiga hug minn inní myndsköpunina, konur í miðju alls. Við erum límið í tilverunni.
Píramíðarnir dansa enn og vekja mig af og til. Jónsmessukveðja til allra. Gréta Berg